þriðjudagur, september 19, 2006

Sónar í dag.

Ég fór í sónar í dag!! Og hvað haldið þið ég er sett 19. febrúar. Kynið hmm... bíðiði ég ætla að spyrja Sverri hvort ég má segja..............bíða enþá......... hann er svoldið montinn með dagsetninguna sko.... já það er STRÁKUR
Við fórum í réttir á Hólmavík um síðustu helgi. Við tókum Sölva og Aron með okkur, og Aron er gott efni í bónda, hann var fljótur að læra þetta. Sölvi aftur á móti er svo mikill berjakall að hann átti það til að gleyma sér í berjatínslu, en fékk að taka með sér heim alblóðugt horn af lambi, mömmu sinni til mikillar gleði. Benni er farin að þora draga lömbin og er duglegur að hlaupa um túnin á eftir rollunum, hann og Aron voru sendir með Sverri lengri leiðirnar. En Ásbjörn fór með afa sínum og ég sá ekki betur en hann væri komin á háhest eftir nokkra spöl. En annars var hann í göngugreiningu í dag og er með ilsig og skakkann hæl þannig að það er ekkert skrítið þótt hann geti lítið gegnið.

Takk í dag
Igga

3 Comments:

At 19 september, 2006 22:24, Anonymous Nafnlaus said...

Ó, litla vinkona mín fær sem sagt að vera prinsessan á bænum!
Verður þetta Sverrir Sverrisson!!??

 
At 21 september, 2006 22:10, Anonymous Nafnlaus said...

hmmm hvað er svona merkilegt við 19.feb????

 
At 11 október, 2006 11:52, Anonymous Nafnlaus said...

já, ég finn það á mér að þú komir nú til með að halda þessu í þér í ca. 4 daga, enda 23. febrúar mjög mjög góður dagur ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home