26. febrúar, sólskin og kalt.
Strákarnir eru farnir frá okkur þessa vikuna og því svolítið tómlegt í kotinu, tveir fullorðnir og tvö lítil börn. Brynhildur er ekki vön þessu þ.e. að vera stóra systir og elsta barnið á heimilinu, aðra hverja viku. En þetta venst og hún er voðalega góð við strákinn, stundum einum of góð.
Í dag kom Olga í heimsókn, færandi hendi, var með alls konar dót í krukkum og piparkökur íBrynhildur sá þegar amma Signý fór út á svalir og hreinsaði til þar um helgina. Hún skellti sér út á svalir, var búin að búa sig til fyrir þetta verk, fór í stígvél og náði í fægiskófluna og setti á sig hjálminn! Ég var ekki vitni að þessum orginal þrifum hjá tengdó en það hefði verið fyndið ef amman hefði dressað sig upp svona þegar svalirnar voru teknar í gegn:-)
Brynhildi fannst hins vegar frekar kalt úti, eins og hún sýnir svona berlega á myndinni („þetta er kalt" látbragðið) þannig að hún fór bara inn fljótlega, enda búið að hreinsa svalirnar svona líka frábærlega nokkru áður!
Á morgun förum við svo með prinsinn í læknisskoðun á spítalann.
Kveðja frá Skógarási.
5 Comments:
hehe þú ert fyndinn :)
Já reyndu að segja okkur að það sé "tómlegt" með bæði Snúð og Snældu í húsinu!!! HAHAHA!
það er gott að Brynhildur sé sátt við litla bróður. Hér kemur ein tillaga að nafni á drenginn, svolítið framúrstefnuleg en læt hana gossa: Teppódór!
Bestu kveðjur frá Varmalandi
Brynhildur var ekki vitni að þessun þrifun, þetta er meðfætt og fylgir nafninu, og svo þarf að lýta eftir að þetta sé vel gert.
Greymdi að setja nafnið undir.
kv Signý
Skrifa ummæli
<< Home